Ađalvalmynd

Auglýsing

Ponsu blogg

14. mars 2009 klukkan 21:21
Vá, það hefur verið að renna upp fyrir mér síðustu daga að ég er búin með helminginn af háskólagráðunni minni!! Surprised Hélt ég væri að verða eitthvað klikkuð um daginn þegar ég sat og fór að hugsa um það að ég væri nú orðin alveg 21 árs og eitthvað.... og svo var ég bara .... bíddu... nei... það getur ekki passað... ég er bara 20 ára.... en heilinn minn vissi betur og var alveg bara NEI..... þú ert orðin 21.... og ég bara uh.... NEI.... og hann bara ... uh JÚ.... og ég alveg.... já.... vá ... sjitt það er satt! 
Og svo var verið að skrá áfangana, sem ég fékk metna fyrir fyrstu önnina í skiptináminu, á INNU-vefnum mínum hjá HA... og þá sá ég að ég hafði nú formlega lokið 90 ECTS einingum við Háskólann á Ak.... sem sagt helmingurinn af B.sc. náminu.... 

Hvað verður eigilega af tímanum??? Surprised Ég er bara svo aldeilis lessa í dag...!! 
Er reyndar líka í góðu skapi því öll verkefna vinnan sem ég var nánast komin með dru*** yfir er bara að ganga framar öllum vonum..... ÉG að meika það í HÓPVINNU?? Hvað gerir tíminn eigilega við mann er hann flýgur framhjá? Surprised Ég er hætt að botna í þessu. 

VIðbót við listann minn í síðasta bloggi er þessi: 
- læra að spila á hljóðfæri! Gjarnan gítar! 

Nú er ég hætt... ég er hreinlega svo hissa að ég held ég bloggi ekkert meira núna! 

Ásta - týnd í tímanum!



 

21 árs blogg!

14. febrúar 2009 klukkan 23:15

Já, það er spurning hvað þetta blogg hérna fær að lifa lengi, nú þegar Facebook tröllríður öllum og öllu. Algjörlega ávanabindandi fjandi.

Héðan er annars lítið að frétta, tíminn líður þó hratt eins og alltaf. Ný önn er byrjuð í skólanum hjá mér og ég náði öllum janúar prófunum með ágætis einkunnum.

Stebbi er enn að leita að vinnu, erum búin að senda umsóknir hingað og þangað og hann er búinn að fara á afleysingaskrifstofur bæjarins og minna á sig, en það er bara svo rosa lítið að gera hjá þeim. Vonandi gerist eitthvað í þessum málum samt.

Það er því enn alveg óljóst hvort við komum heim í vor eða ekki. Fer allt eftir því hvar er skynsamast að vera með tilliti til vinnu og þessháttar.

 

Ég átti ýkt góðan afmælisdag þetta árið, fékk mömmu, Calle, Isak og Björk í heimsókn og við fórum saman út að borða. Fékk fínar gjafir og það var rosa kósí hjá okkur Smile Björk var sko að vinna í Kaupmannahöfn vikuna sem ég átti afmæli svo hún kom til okkar og gisti eina nótt. Fyrst til að koma í heimsókn til okkar frá Íslandi Wink hehe

Annars hef ég ekkert mikið að segja og ætla þessvegna að enda þessa bloggfærslu á nokkrum pælingum um hluti sem ég ætla að gera í lífinu.

 

-       Læra að prjóna (þá meina ég meira en bara trefil)

-       Fara í Eurotrip

-       Gefa Stebba hest

-       Gefa hestamennskunni mun meira pláss í lífinu mínu

-       ….. og þá mjög gjarnan eignast marga góða hesta og helst sveitabæ líka Cool

-       Ferðast um Ísland og fara í margar, margar útilegur

-       Og fara í jeppaferðir þegar ég verð búin að eignast jeppa

-       Síðan í sunnudagsbíltúra þegar ég verð búin að eignast gamlan amerískan

-       Fara í myndatöku hjá Kristínu frænku

-       Hlæja hátt og mikið

-       Komast í góða vinnu sem ég verð ánægð með og líður vel í

-       Fara með Stebba á leik í Enska

-       Fara með Calle í einhverja brálaða klifur-survivor ferð Laughing

-       Vera dugleg að nota þjóðbúninginn og peysufötin sem ég er svo heppin að eiga

-       Skapa enn, enn fleiri góðar minningar með öllum þeim vinum sem ég á, og fjölskyldunni líka

 

Ég tek það fram að þetta er ekki tæmandi listi, heldur bara það sem mér datt í hug á smá tíma Tongue out hahaha, eins gott að ég lifi í nokkur hundruð ár ef ég ætla að ná að gera allt sem mig langar til!

 

Ásta - Dreamer

Síđasta fćrsla ársins 2008

31. desember 2008 klukkan 15:00
Svei mér þá. 
Ég er búin að sitja hérna fyrir framan tölvuna í nokkuð langan tíma, og ég fæ bara ekki skrifaðan þennan annál sem ég ætlaði að setja hér inn. Það gerist alltaf svo mikið hjá manni og í kringum mann á heilu ári, og ég er ekki minnugasta manneskja í heimi. Ég vil ekki fara að skrifa væna ritgerð um hvað gerðist á árinu, og fatta svo eftirá að ég gleymdi helling. Þá fæ ég bara samviskubit, því ég vil ekki að neitt eða neinn gleymist. 
Ég held ég þurfi að fara að halda betur utan um svona hluti, setjast niður í lok hvers mánaðar á næsta ári og svona aðeins taka saman hvað gerðist. Bara svo ég muni allt Smile. Eða allavega flest.

Svona í hnotskurn, þá get ég sagt að árið 2008 var viðburðaríkt og skemmtilegt ár. Hér koma nokkrir punktar, bara svona til að nefna það helsta: 

  • Við ákváðum að flytja til Danmerkur
  • Ég kláraði fyrsta árið í Líftækninni, og fagnaði því með látum ásamt fleiri Stafnbúum
  • Við fluttum á krókinn yfir sumarið
  • Stebbi vann í Dögun og ég í Verinu
  • Sumarið var gott, en leið allt of hratt, eins og öll sumur Wink 
  • Svo var komið að því, við fluttum út
  • Ég byrjaði í skólanum og Stebbi í tungumálaskóla
  • Í Danaveldi höfum við haft það gott, Isak bróðir komið nokkrum sinnum til okkar að gista og búið að vera gott að hafa hann, Mömmu og Calle nálægt okkur
  • Við fylgdumst, og fylgjumst enn, með þessu brjálaða efnahagsástandi á Íslandi, sem hefur gert öllum erfitt fyrir
  • Eeeeen, við lifum af og lærum bara að meta þá hluti í lífinu sem ekki er hægt að meta til fjár Smile það eru nú einu sinni þeir sem skipta mestu máli
  • Enduðum svo árið á því að sjá beinni útsendingu á Kryddsíldinni á stöð 2, hætt vegna mótmæla! Surprised Var að gerast sko! 
  • Förum svo til Röggu í kvöld í mat og bingó! 
  • Svo er bara að sjá hvað árið 2009 færir manni

Hafið það gott í kvöld, og eigið öll gæfuríkt komandi ár! 

Ásta - sem vill ekki verða 21 árs!!  

Jóla, jóla jóla..... jóla. jóla jóla....

24. desember 2008 klukkan 11:27
Gleðileg jól og farsælt komandi ár til allra! 
Þakka fyrir allt það liðna með öllum mínum vinum og fjölskyldu!
Hafið það gott yfir hátíðarnar, ég skrifa svo eflaust einhvern smá annál kringum áramótin.

Ásta - Hlustar á silfursafn Páls Óskars á aðfangadag 

Koma svo krónan!

06. desember 2008 klukkan 12:38

Sæl öll og takk fyrir kommentin við síðasta blogg!
 

Héðan er allt gott að frétta, fyrsti snjórinn er bæði kominn og farinn hér í Odense, hann kom á miðvikudag og fór á fimmtudag! Var samt voða kósí þegar ég sat í tíma og allt í einu pikkaði stelpan sem sat við hliðina á mér í mig og sagði mér að það væri farið að snjóa! Svo var ennþá smá hvítt í trjánum og grasinu þegar ég hjólaði í skólann á fimmtudagsmorguninn, en þegar ég hjólaði heim aftur var allt farið!


Við erum síðan að fara á hinn umtalaða leik OB og Brøndby núna á eftir. Verður spennandi, bara eitt stig sem skilur á milli liðanna og þetta er síðasti leikur ársins. Hverjir ætli verði hinir svokölluðu “haustmeistarar”?
Tongue out


Tölvan hans Stebba kemur loksins heim til okkar aftur núna á eftir…. Hún þurfti sko að leggjast inn á spítala og fara í endurhæfingu, var full af vírusum og drasli. Rétt svo náðist að bjarga henni greyinu, en eins og ég held að Stebbi hafi líka sjálfur sagt frá, þá er núna í fínasta lagi með hana. Það er snilld, kreppan býður ekki beint uppá að við hefðum getað splæst í nýja tölvu sko.

 

Nú er svo gengið á krónunni að byrja að jafna sig, vona að þetta haldi áfram svona og fari ekki að versna aftur í næstu viku, eins og væri reyndar alveg dæmigert.

Talandi um dæmigert…. Þá ákváðum við Stebbi nú að nenna ekki þessu rugli lengur og tryggja okkur danskan pening áður en krónan yrði sett á flot og allt færi til fjandans eins og búið var að spá. Svo við keyptum okkur góða summu af dönskum pening á ömurlegasta gengi í manna minnum, EF svo skyldi nú fara að allt færi til fjandans….. en NEI það fór nottla ekki allt til fjandans og ef við hefðum keypt þennan danska pening núna, en ekki á föstudaginn síðasta, hefðum við sko fengið um það bil 15% meira !!! Garg…. Ótrúlegt alveg Yell

 

Svo til að bæta gráu ofan í svart, þá datt ég á hjólinu mínu þegar ég var að hjóla heim úr skólanum í gær…. Var soldill klaufaskapur bara því ég sá ekki karl sem var að labba inní skóginum, og ég var að koma hjólandi í beygju og þurfti að sveigja frá honum…. Ég meiddi mig feitast og gerði gat á buxurnar mínar og rispaði nýja hjólið! Cry

En svona gerist víst, ég reyndi bara að hugga mig við það að hugsa að það hlyti nú að koma að því að maður myndi detta. Ég meina, ég hjóla alveg nokkra kílómetra á dag svona að meðaltali, svo það er varla skrítið að það gerist slys svona einu sinni.

 

En jæja, ætla að láta þetta duga í bili!

ÁstaKlaufabárður sem á núna einungis götóttar buxur! 

20 dagar í Ísland!

29. nóvember 2008 klukkan 15:00

Shitt, það er sko orðið óafsakanlega langt síðan ég bloggaði!

Stebbi er mikið duglegri í þessu en ég!

 

Héðan er allt gott að frétta, eins og ég sagði frá síðast þá var prófatíð hjá mér, og ég er búna búin að fá að vita að ég náði öllum prófunum Smile Mjög sátt með það!

Fékk 10 (samsvarar sirka 8-9 á íslenska skalanum) í Próteínkemíu

7 (sirka sama og 7,5) í Ensíma og frumuhimnu áfanganum

og svo var einn Bioinformatík (lífupplýsingatækni) áfangi sem maður fékk bara að vita hvort maður væri fallinn eða ekki, engin einkunn.

 

Það er ekkert smá skrítið að vera ekki í prófum svona fyrir jól, eins og er alltaf heima…. Næsta prófatörn hjá mér byrjar akkurat þegar ég kem aftur til DK eftir áramót.
Og talandi um……!! Vá hvað ég er orðin þvílíkt spennt að komast heim í frí, og hitta allt fólkið sem maður saknar Smile Oh, það verður svo gott!

Samt erum við að verða búin að koma okkur voða vel fyrir hér, farin að kynnast fólki og allt er hætt að vera eins framandi og nýtt eins og fyrst. Eeeeen, maður saknar alltaf Íslands soldið, held það sé ekki hægt að komast hjá því.

 

Eins og þið hafið kannski lesið á blogginu hans Stebba, þá fórum við á fótboltaleik um daginn með Isak bróður, það var algjör snilld Smile Erum síðan að fara aftur þann 6. Des, á enn stærri leik og bæði Isak og Calle koma með! Get ekki beðið!

 

En jæja, nú ætla ég aðeins að slappa af og reyna svo aftur að fara að læra, var sko uppí skóla í morgun að gera skýrslu með hópnum mínum. Ekkert smá fúlt að þurfa að fara uppí skóla svona á laugardagsmorgni, en svona er þetta víst. Það er líka alltaf jafn ljúf svo þegar gengur vel og öll vinnan borgar sig!

 

En ég bið að heilsa ykkur í bili, reyni að vera duglegri að skrifa smá blogg svona við og við…. En lofa engu Cool 

Ps. Gunni, ég rétt svo náði því að blogga í nóvember eins og þú baðst um! Wink

Afsökun fyrir ađ vera alveg ađ vera varla talin bloggari lengur!

21. október 2008 klukkan 21:50
Útdráttur... ? Ja, allavega ekki af íslenska reikningnum mínum!... Nánar

Kreppan er á allra vörum!

03. október 2008 klukkan 18:39
Eydís var farin að "æja" á mig þannig að ég held ég þurfi að fara að smella inn nýju bloggi. 

Héðan er allt ágætt að frétta, maður fylgist skelfingu lostinn með krónunni falla samt, þetta ástand er rosalegt. 

En s.s. fyrir utan það, þá er allt gott að frétta! Glottandi 
Bílinn okkar seldist loksins um daginn, fengum að vísu ekki eins mikið fyrir hann og við hefðum vonað en það er samt bara þannig núna víst að maður er heppinn að hafa yfir höfuð selt hann! 
Ég á eftir að sakna hans mikið Gráta Vonandi er fólkið sem fær hann gott fólk... sem man eftir því að klessa hann reglulega því honum fannst það alltaf svo mikið stuð, og sem hlustar á hann þegar hann segir sitt reglulega "æææææi...... ég er bilaður!! Ég nenni ekki af stað í dag!".  Þá þarf að huga vel að honum og koma honum í gott skap aftur, hann er jú bara viðkvæm sál. 
Vil hérmeð kveðja elsku litla hvíta úlfinn minn a.k.a. OA-396... hafðu það gott ! Búhú... Fýldur

Um helgina fórum við í heimsókn til Mömmu, Calle og Isaks, og jú auðvitað líka til Futte litla, jiiii minn hvað hann er mikill krúsí músí Hlæjandi Algjör sko.... Það var ýkt kósí að fara svona í heimsókn, var mest megnis bara legið í leti, farið í smá búðaráp og svo lærði ég reyndar líka smá. 

Tíminn er farinn að líða svo rosalega hratt hjá okkur hér finnst mér, fyrsta "önnin" eða "kvartalið" fer að verða búin í skólanum hjá mér og svo koma próf... það er ein vika eftir af kennslu, svo kemur haustfrí, svo próf og svo koma Eydís Inga og Davíð í heimsókn til okkar! Víj! Brosandi Það verður geggjað gaman! 
Svo í byrjun Nóvember byrjar ný "önn" og ég byrja í nýjum kúrsum...

Það fer líka að styttast í afmælið hans Stebba, það er á þriðjudaginn... ég þarf að skundast útí búð á morgun og kaupa gjöf.... hef nefnilega ekki mikinn tíma í næstu viku eða á sunnudaginn því það er brjálað að gera í verkefnum og fleiru núna síðustu vikuna í skólanum.... Hence, að ég ætti í raun að vera að lesa fræðigreinar um tengingu HIV glycoproteins120 við CD40 móttaka á T-hjálparfrumum, en ekki að blogga...... Erum að gera lokaverkefni um það í Proteinkemiu... sem er áfangi um efnafræði og byggingu prótína...  Þetta er reyndar mjög spennandi efni og ég er búin að finna tonn af heimildum, en ég er bara svo rosalega búin á því eftir vikuna, ég meina það er nú föstudagskvöld... bara fæ mig ekki til að lesa núna! 

Stebbi er síðan líka kominn í Dönsku-skóla og gengur bara mjög vel, en ég ætla að leyfa honum að segja betur frá því á sínu bloggi! 

Ásta - Sem kann að skoða 3D myndir af prótínum í VMD forriti! Ýkt svalt! 




ItS A BOMB! B-O-B-A!!

19. september 2008 klukkan 21:41

Jáhá, það er nú ekki alltaf friðsælt hér í Danmörkinni okkar, en í dag var gerð sprengjuhótun gegn einni stærstu verslunarkeðjunni hér í DK, sem heitir Bilka.....Hissaekki nóg með það, heldur er búðin sem þurfti að rýma, hérna 2 km frá okkur og er sú búð sem við nýtum okkur allra helst til innkaupa!  Þetta er sko snilldar verslun, svona eins og Hagkaup nema ódýrari og með þúsund sinnum meira vöruúrval... þarna getur maður keypt mjólk, allan heimsins mat, verkfæri, mauraeitur, föt, húsgögn og bara jú neim it. 

Er samt ekki viss um að ég þori að fara þangað aftur á næstunni. Held ég fari allavega bara í Netto á morgun þegar ég fer að versla! 

 

Talandi um að það sé hægt að kaupa verkfæri í Bilka.... þá langar mig að segja ykkur frá nokkuð merkilegri upplifun og tilfinningu sem kom yfir mig um daginn þegar ég ráfaði inn í byggingar/garð-deildina í Bilka. 

Ég fékk kaupæði. Mig langaði að kaupa mér verkfærakassa, ég keypti flottasta skiptilykilinn sem ég fann og var næstum búin að kaupa fullan kassa af skrúfum af ýmsum stærðum og gerðum, þó ég hafi í raun bara þurft tvær 6mm. Endaði samt með að kaupa poka með 20 skrúfum og svona plast töppum. 

Það næsta sem ég hugsaði var svo, að ég þyrfti að óska mér verkfæri í jólagjöf. Það þriðja var, að ég áttaði mig á því að mér þykir rosalega vænt um borvélina mína, og hvað mér þykir það gaman þegar ég þarf að nota hana. Svo hætti ég að hugsa því ég hélt ég væri að verða eitthvað geðveik. 

 

Markmiðið með þessari sögu var að koma því til skila til pabba að ég óska mér verkfærakassa í jólagjöf!  Ég elska að eiga verkfæri og geta bjargað mér og smíðað og búið til! 

Lokaniðurstaða: Ég hef erft meira frá pabba en bara það að svitna á efri vörinni!! Hlæjandi

 

Ú já, önnur skemmtileg frétt er það að Mamma, Calle og Isak voru að fá sér hund! Brosandi íks, ég hlakka svo til að hitta hann! Þau fengu hann á þriðjudaginn, svona lítill border terrier, er bara 8 vikna gamall! Mamma sendi mér myndir af honum í gær eða hinn, verð að gá hvort ég kem þeim í myndaalbúmið hér.... Hann er algjör krúsí, heitir Futte eins og hundurinn í Garfield heitir á dönsku. 

 

Síðustu helgi kom Isak bróðir síðan og gisti hjá okkur, eins og við vorum búin að lofa honum um áramótin þegar við ákváðum að flytja til Danmerkur  Hehe... Svalur það var voða kósí, það var nú mest bara legið í leti og svona, en við fórum líka aðeins út í fótbolta á velli sem er hér stutt frá.

 

Já, ég verð svo að fara að setja inn fleiri myndir í albúmið mitt, læt ykkur vita þegar það tekst hjá mér! Þetta myndasvæði er alltaf til vandræða. 

 

En jæja, læt þetta gott heita, knús á ykkur öll! 

 

Ásta - í sprengjulandi

 

Ps. Eydís klukkað mig víst! So here goes Glottandi

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Þjónn á Ólafshúsi, Rannsóknargella í Verinu, Barþjónn á barnum og Eldabuska á Ábæ

 

Fjórar bíómyndir:

Sódóma Reykjavík, The pianist, South park myndin og stuttmyndin okkar í þýsku 403! 

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Sauðárkrókur, Frederikssund, Reykjavík og Odense

 

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

One tree hill, Friday night lights, CSI og Dexter

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Spánn, Frakkland, Grænland og Grikkland

 

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggið:

Vísir.is, Kbbanki.is, blackboard learning system og bloggið mitt (því það er byrjunarsíðan mín!!  haha) 

 

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

Slátur, pizza, ristað brauð og grillað lambakjöt

 

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

Kári litli og lappi, Bói og Bína, Englar alheimsins og About a boy 

 

Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:

Ísland, á hestbaki, í skíðaferðalagi eða bara ... já... þar sem ég er! 

 

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Prófa að klukka Guðrúnu, Ragnhildi, Kristínu og Röggu! 

Ţetta kemur allt...

31. ágúst 2008 klukkan 18:51
Sæl verið þið! 

Ég ætla að byrja á því að láta vita af nýju símanr. okkar sem eru: 

Ásta: (0045)-31475632

Stebbi: (0045)-31472093

Við fengum loksins, loksins símana og áskriftina sem við vildum eftir mikið bras með símafélagið. Það er nefnilega þannig að ef þú ert ekki danskur ríkisborgari þarftu að framvísa einhverskonar dvalarleyfi til að geta stofnað símareikning hjá þessu félagi, en sem íslendingar þurfum við ekkert dvalarleyfi til að vera hér.
En allavega þá fengum við þessa líka fínu 3G síma (sem eru auðvitað framtíðin) og borgum 300 kr danskar á mán. per síma í 6 mánuði. Kosturinn er svo að við getum talað fyrir þessar 300 kr. á mán. og ég efast ekki um að okkur takist það nú.  

Síðan ætla ég að setja inn heimilsfangið okkar svo allir sem vilja geti sent okkur pakka, já eða jafnvel bréf, mér þykir það afskaplega skemmtilegt að fá bréf uppá gamla mátann, það minnir mig svo á það þegar við Kristín og við Auður skrifuðumst á hér í denn. 

Solsikkemarken 42
5260 Odense  
Danmörk 

Annars er ýmislegt að frétta, ég er búin að vera viku í skólanum og það gengur bara fínt. Mér reyndar líður mjög kjánalega að þekkja ekki eina einustu manneskju en vera samt í fyrirlestrum með yfir 100 manns. Eins og þeir sem þekkja mig vita, þá er ég mjög málglöð og fíflast alltaf mikið og það er erfitt að vera svona alein og rata ekki einu sinni í skólanum sínum. Vonandi kynnist ég einhverjum bráðum og þetta verður bara fínt. Það kom reyndar stelpa til mín um daginn og spurði hvort ég vildi vera læse-partnerinn hennar, en þá hittumst við einu sinni í viku og lærum saman í ákveðnu fagi. Og það er nú bara ágætis byrjun á að kynnast fólki. 

Það er margt sem er öðruvísi hér en í skólanum heima, en hér eru t.d. 4 annir á einu ári (reyndar bara í minni deild) og svo mætir fólk í tímana sína hér þó það sé ekki mætingarskylda í fyrirlestra né bekkjartíma. Annað en á Akureyri þar sem það kom nú einu sinni fyrir að enginn mætti í fyrirlestur hjá Sigþóri greyinu! 
Bekkjartímar eru síðan svona tímar sem eru gerðir til að vinna verkefni og gefa manni færi á að spyrja spurninga sem er ekki hægt í fyrirlestrum því þar er það bara kennarinn sem talar. 

Stebbi er síðan kominn með vinnu, þannig að það er allt á réttri leið hjá okkur hér. Meira um það má lesa á blogginu hans: 
www.stefanodense.bloggar.is

Í dag hjóluðum við á staðinn sem Stebbi á að vinna á morgun, það var sko ekkert grín. Við villtums soldið á leiðnni og enduðum með að hjóla sirka 20 km í allt og það í sól og 22°C hita sem er búið að vera í dag! 

Aðrar og leiðilegri fréttir eru þær að í dag fékk ég soldla heimþrá... Fýldur Það var afmælisveisla á Barðastöðum í dag, fyrir Þórunni sem verður 1 árs á morgun og svo er ég svo leið yfir því að geta ekki farið og kíkt á nýja litla strákinn þeirra Kristínar og Tryggva. Síðan hjálpar það auðvitað ekki að vera á nýjum stað og nýjum skóla og allt það sem maður verður soldið stressaður útaf. En þetta kemur allt, ég fékk líka svona tilfinngarflóð þegar við fluttum fyrst á Akureyri. Svo kom bara í ljós að þar var gott að búa og við eignuðumst fullt af vinum og minningum. 

Í gær fórum við Ásdís Adda síðan í smá stelpu-verslunarferð í Rosengaardscenter sem er verslunarmiðstöð hér. Það var voðalega næs, kaupa sér eitthvað smá fínt og spjalla og svona, við Ásdís höfum líka eigilega ekkert hisst síðan á öðru árinu mínu í FNV. 
Fyrir þá sem ekki vita þá búa sko Ásdís Adda, sem er vinkona mín frá Skagaströnd, og kærastinn hennar hann Sigurgeir, hér í Odense líka. 

En jæja, ég ætla að láta þetta gott heita, endilega kvittið fyrir komu ykkar, það hlýjar litlu hjarta með heimþrá að vita að það sé hugsað til þess! 

Ásta - stolt af pabba sínum sem vann 1600 flokkinn í Rallý Reykjavík um daginn! Hlæjandi 
Og 2000 flokkinn líka!! Glottandi Haha, að sjálfsögðu pabbi, sorrí! Svalur


Um mig

  • Nafn: Ásta
  • Stađur: Odense
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi í HA/Syddansk universitet
  • Hjúskaparstađa: Trúlofuđ
  • Um mig: Bara hress lítil kjánastelpa :)
  • Annađ: neibb.... ekki núna...

Könnun

Hvar á ég ađ fá mér tattú nr. 2 ?