Aðalvalmynd

Auglýsing

Síðasta færsla ársins 2008

31. desember 2008 klukkan 15:00
Svei mér þá. 
Ég er búin að sitja hérna fyrir framan tölvuna í nokkuð langan tíma, og ég fæ bara ekki skrifaðan þennan annál sem ég ætlaði að setja hér inn. Það gerist alltaf svo mikið hjá manni og í kringum mann á heilu ári, og ég er ekki minnugasta manneskja í heimi. Ég vil ekki fara að skrifa væna ritgerð um hvað gerðist á árinu, og fatta svo eftirá að ég gleymdi helling. Þá fæ ég bara samviskubit, því ég vil ekki að neitt eða neinn gleymist. 
Ég held ég þurfi að fara að halda betur utan um svona hluti, setjast niður í lok hvers mánaðar á næsta ári og svona aðeins taka saman hvað gerðist. Bara svo ég muni allt Smile. Eða allavega flest.

Svona í hnotskurn, þá get ég sagt að árið 2008 var viðburðaríkt og skemmtilegt ár. Hér koma nokkrir punktar, bara svona til að nefna það helsta: 

  • Við ákváðum að flytja til Danmerkur
  • Ég kláraði fyrsta árið í Líftækninni, og fagnaði því með látum ásamt fleiri Stafnbúum
  • Við fluttum á krókinn yfir sumarið
  • Stebbi vann í Dögun og ég í Verinu
  • Sumarið var gott, en leið allt of hratt, eins og öll sumur Wink 
  • Svo var komið að því, við fluttum út
  • Ég byrjaði í skólanum og Stebbi í tungumálaskóla
  • Í Danaveldi höfum við haft það gott, Isak bróðir komið nokkrum sinnum til okkar að gista og búið að vera gott að hafa hann, Mömmu og Calle nálægt okkur
  • Við fylgdumst, og fylgjumst enn, með þessu brjálaða efnahagsástandi á Íslandi, sem hefur gert öllum erfitt fyrir
  • Eeeeen, við lifum af og lærum bara að meta þá hluti í lífinu sem ekki er hægt að meta til fjár Smile það eru nú einu sinni þeir sem skipta mestu máli
  • Enduðum svo árið á því að sjá beinni útsendingu á Kryddsíldinni á stöð 2, hætt vegna mótmæla! Surprised Var að gerast sko! 
  • Förum svo til Röggu í kvöld í mat og bingó! 
  • Svo er bara að sjá hvað árið 2009 færir manni

Hafið það gott í kvöld, og eigið öll gæfuríkt komandi ár! 

Ásta - sem vill ekki verða 21 árs!!  
Gleðilegt nýtt ár :)
#1
01. janúar 2009 klukkan 21:15
 
MAMMA
Glðilegt ár bæði tvö og vonandi gerist eitthvað skynsamlegt og skemmtilegt á árinu 2009.

Knus frá okkur í danaveldinu

Mamma.
#2
04. janúar 2009 klukkan 22:19

Skrifa athugasemd

Um mig

  • Nafn: Ásta
  • Staður: Odense
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi í HA/Syddansk universitet
  • Hjúskaparstaða: Trúlofuð
  • Um mig: Bara hress lítil kjánastelpa :)
  • Annað: neibb.... ekki núna...

Könnun

Hvar á ég að fá mér tattú nr. 2 ?