Aðalvalmynd

Auglýsing

Ponsu blogg

14. mars 2009 klukkan 21:21
Vá, það hefur verið að renna upp fyrir mér síðustu daga að ég er búin með helminginn af háskólagráðunni minni!! Surprised Hélt ég væri að verða eitthvað klikkuð um daginn þegar ég sat og fór að hugsa um það að ég væri nú orðin alveg 21 árs og eitthvað.... og svo var ég bara .... bíddu... nei... það getur ekki passað... ég er bara 20 ára.... en heilinn minn vissi betur og var alveg bara NEI..... þú ert orðin 21.... og ég bara uh.... NEI.... og hann bara ... uh JÚ.... og ég alveg.... já.... vá ... sjitt það er satt! 
Og svo var verið að skrá áfangana, sem ég fékk metna fyrir fyrstu önnina í skiptináminu, á INNU-vefnum mínum hjá HA... og þá sá ég að ég hafði nú formlega lokið 90 ECTS einingum við Háskólann á Ak.... sem sagt helmingurinn af B.sc. náminu.... 

Hvað verður eigilega af tímanum??? Surprised Ég er bara svo aldeilis lessa í dag...!! 
Er reyndar líka í góðu skapi því öll verkefna vinnan sem ég var nánast komin með dru*** yfir er bara að ganga framar öllum vonum..... ÉG að meika það í HÓPVINNU?? Hvað gerir tíminn eigilega við mann er hann flýgur framhjá? Surprised Ég er hætt að botna í þessu. 

VIðbót við listann minn í síðasta bloggi er þessi: 
- læra að spila á hljóðfæri! Gjarnan gítar! 

Nú er ég hætt... ég er hreinlega svo hissa að ég held ég bloggi ekkert meira núna! 

Ásta - týnd í tímanum!



 
 
mallý
Já tíminn líður ótrúlega hratt,var einmitt að hugsa um að í sumar eru 5 ár síðan við fluttum á Krókinn, finnst það ótrúlegt.Alltaf gaman að lesa blogg frá ykkur,og gott að námið gengur vel.Kveðja M
#1
16. mars 2009 klukkan 10:32
 
Björk
Áfram Ásta!
...þú ferð fljótlega að sjá í mark í þessu maraþoni!
knús,
Björk
#2
18. mars 2009 klukkan 09:21
Vá ég hef ekki komið hingað inn heilleingi, allt þessu facebook að kenna :) En hey fyndið blogg og ótrúlegt að þú sért búin með svona mikið þú ert svo endalaust dugleg !! Þú er fyrirmyndin mín u know :) ;)
#3
30. apríl 2009 klukkan 11:05
 
Eydís
vá.. ég líka búin með helminginn af BS náminu mínu.. gosh var ekki búin að hugsa svo langt! en hlakkar geggjað til að fá þig á klakann aftur! knús á þig sæta mín
#4
04. júní 2009 klukkan 02:41
 
Mamma
Já þetta líður allt rosalega hratt, þú átt erfitt með að trúa að þú sért 21, en hvað með mig....:0) get ekki trúað að ég eigi svona "stóra" stelpu......:0) Náminu ertu nú alltaf vön að rúlla upp...á ekki vona á neinum breytingum þar....hef bara óendanlega mikla trú á þér.
#5
12. júní 2009 klukkan 17:01

Skrifa athugasemd

Um mig

  • Nafn: Ásta
  • Staður: Odense
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi í HA/Syddansk universitet
  • Hjúskaparstaða: Trúlofuð
  • Um mig: Bara hress lítil kjánastelpa :)
  • Annað: neibb.... ekki núna...

Könnun

Hvar á ég að fá mér tattú nr. 2 ?